Klif ehf

Birgjar

Forsíða : Birgjar
  • Bauer Kompressoren GmbH

    Bauer öndunarloftspressurnar þarf ekki að kynna fyrir köfurum eða öðrums sem nota öndunarloft. Klif ehf hefur selt og þjónustað Bauer frá 1966 á Íslandi og víðar. Erum með olíur og síur á lager.
  • Bradford Tool Group

    Þeir eru með kjarnabora, snittappa, úrsnarara og annað til að skera málma.
  • C.H. Symington & Co

    Fúgukol og fúgubyssur eru þeirra mál síðan 1949. Klif ehf flytur inn frá þeim fúgubyssur og varahluti í þær.
  • Carver & CO LTD

    Þessir eru með alvöru þvingur, tessa og annað fyrir járniðnað. Sögu þessa fyrirtækis má rekja til 1776 sem söðlasmiðju. Þvingu og festinga framleiðsla fyrirtækisins byrjaði á fimmta áratugnum síðustu aldar.
  • CEA S.p.A.

    Frá árinu 1950 hefur CEA framleitt rafsuðuvélar, plasmaskurðarvélar og punktsuðuvélar. Það má rekja fyrirtækið aftur til 1936 á framleiðslu rafsuðuvéla. Klif ehf hefur í nokkur ár flutt inn vélar frá þeim með miklum ágætum.
  • Centurion Safety Products Limited

    Saga þessa fyrirtækis má rekja til ársins 1879. Þeir framleiða öryggshjálma, andlitshlífar, eyrnahlífar og búnað fyrir öndunarloft.
  • Eden Greenhouses Ltd

    Klif ehf hefur flutt inn gróðurhús frá Eden í yfir 30 ár. Eitthvað á annaðþúsund hús eru kominn til Íslands á okkar vegum. Erum með varahluti og aukahluti fyrir okkar hús.
  • Flevo Rubber Extrusion

    Hollensk gúmmísteypa sem Klif ehf hefur láta vinna fyrir sig lúgupakkningaefni fyrir íslensk skip og báta.
  • Gas-ARC Group Ltd

    Gas arc er með allt til logsuðu/skurð, tæki spíssa og þrýstijafnara á flöskur.
  • Gullco Int. Limited

    Þeir framleiða hitabox, bökunarofna, skurðar/suðudreka og fösunarvélar.
  • Hilarius Haarlem Bv

    Hilco rafsuðuvír er eitt þekktasta og mest notaða rafsuðuvíra merki á Íslandi. Stofnað árið 1915 í Hollandi og Klif ehf byrjar að selja Hilco rafsuðuvíra á Íslandi árið 1966.
  • I.N.E. S.p.A.

    Þeir framleiða rafsuðuvír, rafsuðuvélar og skurðar og slípiskífur.
  • Italian Cable Company S.p.A.

    Klif ehf tekur in rafmagnskapla með koparkjarna frá þessum aðila. Kaplar fyrir rafsuðu eða jarðsamband.
  • J.P. Nissen Company

    Merkipennar, merkilitir, túss og krítar. Allt fyrir að mekja á stál, plast og annað efni.
  • JAS welding

    Jas er heilsölu fyrirtæki sem getur útvegað margar góðar vörur á góðu verði.
  • Jeveka BV

    Klif ehf flytur inn koparbolta fyrir bremsuborða frá Jeveka Hollandi.
  • KISWEL

    Klif ehf flytur inn rafsuðuvír frá Kiswel, S-Kóreu. Allir rafsuðuvírar sem við tökum inn frá þeim eru með LR og/eða DNV vottanir.
  • Köster & Co GmbH

    Köster framleiðir skotbolta og skotboltavélar af öllum stæriðum og gerðum.
  • Litty Handelsgesellschaft MBH

    Litty eru sérfræðingar í Wolfram (Tungsten) skautum og varahlutum fyrir TIG-suðu. Eru með slípivélar fyrir Wolfram skaut og fl.
  • MagTron LTD

    Þeir framleiða segulborvélar og kjarnabora í þær. Eru með alla aukahluti tengda segulborvélum.
  • Metalli TraFilati Laminati srl

    Klif ehf hefur haft viðskipti við þetta fyrirtæki í tugi ára. Þeir bjóða uppá ál MIG og TIG suðuvíra með alla þær vottanir sem þarf.
  • Myking A/S

    Fyrirtæki sem var stofnað í Noregi fyrir meira en 30 árum síðan. Þeir eru með rafsuðutangir, jarðsambönd og annað sem þarf fyrir rafsuðu.
  • Nederman

    Stofnað 1944 í Svíþjóð, svakalegt fyrirtæki á sviði loftræstingar á öllum sviðum. Þeir eru með afsog, ryksugur, slöngurúllur, kapalrúllur og togrúllur af öllum stærðum og gerðum.
  • Norsk Sveiseteknikk AS

    Þetta er norskt fyrirtæki sem var stofnað árið 1991 og eru að dreyfa rafsuðuvír frá Nippon Steel & Sumkin Welding sem er japanskur rafsuðuvíraframleiðandi. Klif selur fluxfyllta MIG-suðuvíra frá NST.
  • North Safety Products

    North Safety Products er fyrirtæki sem hefur verið til af samruna margara fyrirtæka eins og Focus (1893), Akron (1868), Arbin personel protection (1870). Þeir eru með öryggsbúnað fyrir iðnaðarmenn. Líflínur, andlitshlífar, öndunarbúnað, eyrnahlífar, örygghjálma, hanska og hlífðarföt.
  • Novametal SA

    Klif ehf hefur flutt inn ryðfría og álsuðuvíra (MIG og TIG) frá Novametal Swiss í tugi ára með miklum ágætum.
  • Optrel AG

    Þeir eru með hlífðarbúnað fyrir iðnaðarmenn, rafsuðuhjálma með fótósellu, stækkunargler í rafsuðuhjálma og lausar fótósellur i rafsuðuhjálma (51x108).
  • Parweld Limited

    Stofnað 1972 í Englandi. Þeir eru stórir í MIG og TIG-suðubyssum og öllum varahlutum. Eru með Wolframskaut, jarðsambönd og pinnasuðu tangir og annað sem rafsuðumannininum vantar.
  • Pelox

    Pelox er stofnað árið 1956. Klif ehf flytur inn frá þeim sýrur fyrir ryðfrítt stál, ál og kopar. Þeir eru með heildar lausnir í sambandi við sýruböð og fl.
  • POLIGRAT GmbH

    Klif ehf flytur inn sýru til að þekkja í sundur 304 og 316 stál. Kemur sér vel þegar það er búið að blanda saman ryðfría stál lagernum.
  • Premines Industries

    Klif ehf flytur inn skurðar,slípi, flappa og pappaskífur frá Prénines fyrir stál og ryðfrítt stál.
  • RIMAG

    þýskur heildsali sem er með allt mögulegt fyrir rafsuðumenn og annan iðnað. Klif ehf hefur verið í sambandi við þá í mörg ár og þeir útvega ýmislegt á snöggan hátt. Þeir vöru stofnaðir árið 1966 eins og Klif ehf.
  • Sellstrom Manufacturing Company

    Þeir hafa veriða að framleiða persónuhlífar fyrir iðnaðarmenn í öllum geirum í yfir 85 ár. Eru með rafsuðuhjálma, öryggsgleraugu, eyrnatappa og fl. fl. fl.
  • Sinotec Sicherheits Systeme GmbH

    Þeir framleiða suðutjöld, suðubása, suðuhjálma og afsog fyrir rafsuðu.
  • Speciality Welds

    Klif ehf hefur í nokkuð mörg ár flutt inn fyrir íslenska kafara neðansjávar rafsuðuvír og skurðarvír frá Speciality Welds. Einng sérstakan ryðfrían neðansjávarvír. Þeir eru líka með neðansjávar rafsuðutangir og annað fyrir rafsuðu neðansjávar.
  • Steel Tailor Ltd

    Steel Tailor er kínverskt fyrirtæki sem framleiðir snildar skurðar/suðu dreka sem er færanlegur. Þeir eru líka með stærri vélar ef þarf. Klif ehf hefur flutt inn nokkrar vélar við góðan orðstír og á góðu verði.
  • Sumner Manufacturing company INC

    Klif ehf flytur inn röraþvingur fyrir rörasuðumenn frá Sumner.
  • Trafimet Schweisstechnik GmbH

    Trafimet er með gott úrval af MIG-suðubyssum, TIG-suðubyssum og plasmabyssum. Þeir eru líka með helstu varahluti í flestar aðrar gerðir.
  • Trimat Ltd

    Bremsuborðaefni frá Bretlandi fyrir togspil.
  • Van Beek Lastechniek

    Þetta er fyrirtæki sem Klif ehf hefur haft mikið samband við í gegnum árin. Fyrrverandi Filarc söluaðili. Er með sambönd víða.
  • Weld-Aid

    Þeir eru búnir að þjónusta rafsuðuiðnaðinum í yfir 50 ár. Eru með suðufeiti, lúsasprey og hreinsipúða fyrir MIG-suðuvir.
  • Weldas Europe b.v.

    Framleiða rafsuðuhanska, vinnuhanska, húfur, vinnugalla, eldvarnarteppi og annað fyrir iðnað.
  • Wescol Ltd

    Wescol eru með gastæki fyrir suðu og skurð. Eru með þrýstijafnara á gasflöskur og annað fyrir logskurð eða suðu.
  • Zinser Schweisstechnik GmbH

    Zinser er með úrval af gas skurðar/suðu tækjum og aukahlutum og varahlutum fyrir það. Einnig gas skurðarvélar.
Leitarvél