Klif ehf

Um okkur

Forsíða : Um okkur

KLIF hf var stofnað í mars 1966 af Svavari Davíðssyni og fjölskyldu, en félagsformið var breytt í desember 1995 í ehf. Eignarhald er óbreytt, nema að stafsmaður okkar Kristján Jónas Svavarsson á hluta í fyrirtækinu.

Fyrirtækið hefur sérhæft sig í þjónustu við málmiðnaðinn, en höfum í tímans rás bætt við öllum fylgihlutum, auk nauðsynja fyrir skip.  Við eigum á lager nánast allt viðkomandi rafsuðu og logsuðu eins og suðuvélar, afsogsbúnað, slípivörur, kapla, hanska, suðubyssur, o.fl.o.fl. Meðal nausynja fyrir flotann nefnum við ál-forskaut, bremsuborðaefni, lúgupakkningaefni.

Félagið hefur á löngum starfsferli eignast stóran hóp viðskiptavina, fyrirtækja í málmiðnaði, jarðvinnslu og byggingaverktaka, stóriðju, fiskvinnslu og útgerðarfyrirtæki, svo og sjálfstætt starfandi iðnaðarmenn um allt land.

Fastir starfsmenn eru nú 5-6, þar af 4, sem allir eru lærðir og með fullum réttindum, hver í sinni iðngrein.

Við höfum kappkostað að eiga söluvörur okkar fyrirliggjandi á lager okkar og veita viðskiptamönnum okkar góða þjónustu og leiðbeiningar.

Söluvörur okkar eru keyptar milliliðalaust frá framleiðendum og erum nú umboðsaðilar fyrir yfir 40 framleiðendur.

Leitarvél